Nýjar myndir sýna ógrynni rotnandi eldislaxa í sjókvíum á Reyðarfirði

Verndarsjóður villtra laxastofna, North Atlantic Salmon Fund (NASF) á Íslandi, og kajakræðarinn Veiga Grétarsdóttir opnuðu á umræðu um skuggahliðar sjókvíaeldis í byrjun ágúst með ógeðfelldum myndum af illa förnum eldisfiskum á Vestfjörðum. Myndir og umfjöllun leiddi í ljós hve slæmt opið sjókvíaeldi væri fyrir umhverfi, dýravelferð og atvinnulíf í brothættum byggðum. Nýjar myndir sem Veiga Grétarsdóttir hefur tekið á Reyðarfirði sýna í dag enn verri og óverjandi stöðu.

Eldisfyrirtækin sögðu í ágúst að illa farin lax væri undantekning
Myndefnið var tekið dagana 10. til 15. september og sýnir mikinn fjölda rotnandi laxa fljótandi í sjókvíum innan um lax sem enn er lifandi og mun verða seldur til manneldis.

Í ágúst gerðu eldisfyrirtækin lítið úr myndefninu frá Veigu Grétarsdóttur og sögðu það sýna fáa illa farna fiska sem ekki væri normið í rekstrinum. Starfsmaður Hafrannsóknarstofnunar staðhæfði hinsvegar að eitthvað hefði greinilega farið úrskeiðis í viðkomandi laxeldi.

Aðeins rúmum mánuði síðar og um viku eftir að laxeldisfyrirtækin opnuðu áróðursmiðstöðina Lax-inn sem lið í hagsmunagæslu sinni fyrir kosningar, hefur Veiga Grétarsdóttir hinsvegar fangað hina raunverulegu stöðu laxeldis á mynd og hún er skelfileg.

Forsvarsmaður laxeldis tvísaga í fjölmiðlum
„Ég fylgdist með úr fjarska á föstudeginum og sá starfsmenn eldisfyrirtækisins dæla dauðum laxi úr kvínni í einn og hálfan tíma og eins og sést á þessum myndum þá er þetta hinn nöturlegi raunveruleiki. Eftir helgina hafði þetta hinsvegar versnað enn meira. Ég skil ekki að nokkur maður hafi lyst á að leggja sér eldisfisk úr þessum kvíum til munns eða styðja svona framleiðslu. Þegar fiskurinn drepst þarna er búið að reyna ýmislegt en þarna er samt mikið magn af haus- og roðlausum úldnandi fiski og allan tíman safnast upp mengun í firðinum af þessu,“ segir Veiga Grétarsdóttir.

Veiga segir ennfremur að á þriðjudeginum hafi þörungablómi einnig farið vaxandi en ljóst má vera að laxadauðinn mun aukast enn frekar vegna þörunganna. Á sama tíma hafi forsvarsmaður Laxa fiskeldis, Jens Garðar Helgason, verið tvísaga í fjölmiðlum. 15. september hafi hann sagt að ekki hafi orðið vart við neinn fiskidauða í viðtali við Austurfrétt en í gær í fréttatíma RÚV hafi hann sagt marglyttur valda skaða á eldisfiski um leið og hann sagði áskoranir líka fylgja landeldi.

Skora á neytendur að sniðganga eldislax úr sjókvíaeldi
„Við getum ekki látið þetta viðgangast lengur. Þetta er bara viðbjóður og frambjóðendur til Alþingis skulda okkur skýringar á því hvort þeir ætli að taka ábyrga afstöðu og færa laxeldi upp á land, eða láta dýraníð og umhverfisspjöll verða normið eins og við sjáum þarna. Ég trúi ekki öðru en að neytendur segi stopp núna og krefjist þess að eldisfiskur til neyslu verði merktur svo hægt sé að sniðganga lax úr eldi í opnum sjókvíum. Það drepast um átta þúsund fiskar á dag í sjókvíaeldi við þessar aðstæður,“ segir Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs villtra laxastofna á Íslandi.

Ímynd Íslands sem framleiðanda hreinna afurða í hættu
Skoski umhverfisverndarsinnin Don Staniford hjá Scottish Salmon Watch segir myndefnið sýna sömu slæmu stöðuna og í Skotlandi. „Þetta er hrikalegt að sjá. Sú ímynd að Ísland sé fyrirmyndarland hreinnar náttúru og upprunaland hreinna afurða er mjög sterk í Bretlandi. En þetta er alveg jafn slæmt og það versta sem við sjáum í skosku laxeldi og þetta verður að stoppa með öllum ráðum.“

Verndarsjóður villtra laxastofna mun birta allt myndefnið á vef sínum www.nasf.is og skorar á fólk sem hefur upplýsingar um slæma meðferð, mengun frá sjókvíaeldi og laxadauða að hafa samband við samtökin. Fullum trúnaði er heitið.