Verndun lykilbúsvæða er einn mikilvægasti þáttur í vernd villtra laxastofna. Þótt margvísleg mannleg umsvif hafi áhrif á búsvæði laxins eru fáar framkvæmdir jafn áhættusamar fyrir villta laxastofna og vatnsaflsvirkjanir. Ástæðan er einföld: slíkar framkvæmdir hindra eða loka náttúrulegum gönguleiðum laxins þegar hann syndir upp ár til hrygningar og hafa áhrif á niðurgöngu seiða laxfiska.
NASF gegnir lykilhlutverki í andstöðu við virkjanir í laxveiðiám landsins. Dæmi um slíkt er fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá, sem geymir stærsta laxastofn landsins. Fyrirhugaðar virkjanir, sem dæmi Hvammsvirkjun, myndu skapa verulegar gönguhindranir fyrir laxinn ásamt því að auka afföll seiða á leið til sjávar.
NASF og samstarfsaðilar vinna gegn áformum sem ógna náttúrulegum gönguleiðum laxins. NASF leggur áherslu á að tryggja að verðmæt búsvæði haldist opin og aðgengileg – bæði í dag jafnt sem til framtíðar.