Hafsvæðin við Færeyjar og Grænland gegna lykilhlutverki sem fæðuslóð laxastofna, beggja vegna Atlantshafsins. Þar safnast saman laxar úr yfir 2.000 ám, áður en fiskarnir halda aftur til sinna heimaáa til hrygningar. Af þeim sökum teljast veiðar á þessum slóðum til svokallaðra blandaðra stofnveiða (e. mixed stock fisheries). Við slíkar veiðar er ómögulegt að veiða eingöngu fiska úr sterkum stofnum. Því geta viðkvæmir stofnar úr smærri ám til að mynda orðið fyrir verulegu tjóni ef ofveiði á sér stað.

Verndarsamningar NASF og ASF (The Atlantic Salmon Federation) hafa verndað þessa viðkvæmu stofna frá árinu 1991, þegar fyrsti samningurinn var gerður í Færeyjum að frumkvæði Orra Vigfússonar. Sá samningur var í gildi til ársins 2022, þegar veiðunum var lokað varanlega þar í landi. Samningur NASF lagði grunn að þessari ákvörðun með því að styðja veiðimenn í að færa sig frá laxveiðum yfir í aðrar sjálfbærari atvinnuveiðar og sýna með því fram á að varanleg lokun veiðanna væri raunhæfur og ákjósanlegur möguleiki.

Á Grænlandi blasti við annars konar áskorun. Landið er afar víðfeðmt, byggðir dreifðar og margar þeirra reiða sig á laxveiðar sem hluta af lífsviðurværi sínu. Þrátt fyrir þessar áskoranir hafa NASF og ASF gert nokkra samninga í Grænlandi frá árinu 1993. Nýjasti samningurinn (2018) leiddi til innleiðingar nýs leyfis- og skráningarkerfis undir eftirliti sjávarútvegsráðuneytisins. Í dag eru engar atvinnuveiðar stundaðar á laxi á Grænlandi og kvótar til svokallaðra heimilisveiða eru í sögulegu lágmarki, auk þess sem veiðar hafa verið stöðvaðar alfarið á tilteknum tímabilum.