Frumvarpið svari ekki „kröfum kjósenda“

Frumvarpið svari ekki „kröfum kjósenda“

Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF), sem vill banna sjókvíaleldi á Íslandi, segir að drög að frumvarpi atvinnuvegaráðherra um lagareldi svari „ekki kröfum kjósenda“.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Í tilkynningunni gagnrýnir Verndarsjóður villtra laxastofna ný drög að frumvarpi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra og segir þau byggja á þeirri forsendu að hægt sé að stunda opið sjókvíaeldi án þess að það valdi umhverfisskaða. Samtökin segja slíkt ekki hafa tekist í neinu landi og telja frumvarpið ganga gegn markmiðum um vistkerfis- og varúðarnálgun.

„Í markmiðsgrein frumvarpsins kemur fram að fumvarpið á að byggja á vistkerfis- og varúðarnálgun, en það er erfitt að sjá hvernig það stenst skoðun,“ segir í tilkynningunni.

 

Lesa meira: https://www.mbl.is/200milur/frettir/2025/12/29/frumvarpid_svari_ekki_krofum_kjosenda/