Tap af völdum laxadauða talið nema rúmum milljarði

Tap af völdum laxadauða talið nema rúmum milljarði
Norway Royal Salmon, eigandi Arctic Fish sem er með laxeldi í Dýrafirði, áætlar að tap af völdum umfangsmikils laxadauða í eldiskvíum fyrirtækisins nemi um 12 milljónum dollara eða 1,5 milljörðum íslenskra króna. Talið er að um þrjú þúsund tonn af laxi, tilbúnum til slátrunar, hafi drepist.

Þetta kemur fram í frétt IntraFish þar sem laxadauðanum er sagður vera stórslys (e.disaster).

Nánar hér: https://www.ruv.is/frett/2022/02/23/tap-af-voldum-laxadauda-talid-nema-rumum-milljardi