Þjóðar­gjafir fyrir út­valda

Þjóðar­gjafir fyrir út­valda

Undanfarna þrjá áratugi hafa flestar gjafir þjóðarinnar lent hjá vildarvinum. Fyrst voru fiskimiðin afhent svokölluðum „kvótahöfum” – ókeypis. Og nýbúið er að afhenda norskum auðfyrirtækjum bæði Vestfirði og Austfirði, líka ókeypis. Var ekki nóg að gefa SR-mjöl, Kögun, Þormóð ramma, Aðalverktaka, Símann, Landsbankann og Búnaðarbankann svo að einhverjir séu nefndir? Hvar er andvirði þessara gjafa þjóðarinnar? Átti ekki að byggja nýja Landsspítalann fyrir andvirði Símans?

Síðasta dæmi þjóðargjafa er fiskikvótinn. Þar fór þorsktonnið í þessum mánuði á 5 milljónir í sölu á milli innlendra fyrirtækja, bara kvótinn frá þjóðinni. Enn óskiljanlegri er sú háttsemi að afhenda ókeypis norskum auðrisum og íslenskum umboðsmönnum þeirra Vestfirði og Austfirði til að ala norskan lax í opnum sjókvíum með hrikalegum afleiðingum fyrir náttúruna. Allt í boði Vinstri Grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarrflokksins.

Lesa meira: https://www.visir.is/g/20212156300d