„400.000 laxar í íslenskum sjókvíum drápust í júní síðastliðnum og 1.350.000 laxar hafa drepist í sjókvíum það sem af er þessu ári. Til að setja það í samhengi má nefna að íslenski laxastofninn telur aðeins um 50-80 þúsund fiska. Langt því frá öllum eldisfiski er slátrað, stór hluti deyr alltaf úr þrengslum, sjúkdómum og sníkjudýrum án þess að neytendur hafi vitneskju um hvílíkar efnalaugar opnar sjókvíar eru. Nauðsynlegt er að opna augu neytenda fyrir þessu.“