Laxeldi í opnum sjókvíum hefur veruleg neikvæð áhrif á villta laxastofna og þau vistkerfi sem þeir treysta á.

  • Strokulaxar og erfðablöndun þeirra við villta laxa veikja erfðafræðilegan styrk villtra laxastofna og draga úr aðlögunarhæfni þeirra í náttúrunni.
  • Laxalús sem þrífst opnum sjókvíum getur haft alvarleg neikvæð áhrif á villt sjógönguseiði laxa og verulega aukið afföll þeirra.
  • Losun úrgangs frá opnum sjókvíum hefur áhrif á nærumhverfi kvíanna og getur raskað vistkerfum fjarðanna.
  • Velferð eldislaxa í opnum sjókvíum er afar slæm, en ekki er óalgengt að afföll séu á bilinu 20–25%.
  • Rannsóknir hafa jafnframt bent á að ýmis mengunarefni, svo sem PCB og díoxín, geti safnast fyrir í eldislaxi. Að sama skapi losar þessi iðnaður umtalsvert magn af örplasti í hafið.